Skip to Content

Lög félagsins

LÖG

BIFREIÐASTJÓRAFÉLAGSINS

FRAMA

 

I.                  KAFLI

ALMENN ÁKVÆÐI

 

1. grein

Félagið heitir Bifreiðastjórafélagið Frami. Starfssvæði þess er Reykjavík, Kópavogur, Seltjarnarnes, Mosfellsbær, Hafnarfjörður, Garðabær, Álftanes, Reykjanesbær, Miðnes-, Gerða-, Vatnsleysustrandarhreppur og Grindavíkurbær.

 

2. grein

Tilgangur félagsins er;

a.       að gæta hagsmuna félagsmanna og vinna að samstöðu leigubifreiðastjórastéttarinnar í heild;

b.      að standa vörð um ökutaxta félagsmanna;

c.       að hafa eftirlit með að félagsmenn veiti góða þjónustu og að þeir uppfylli þau skilyrði sem sett eru í lögum og reglugerðum um leigubifreiðar á hverjum tíma;

d.       að halda uppi takmörkun á fjölda leigubifreiða til mannflutninga á félagssvæðinu;

e.                  að koma fram fyrir hönd félagsmanna gagnvart stjórnvöldum.

 

3. grein

Rétt til að ganga í félagið hafa allir þeir, sem öðlast hafa atvinnuleyfi til aksturs 4 – 8 farþega leigubifreiða á félagssvæðinu.

 

4. grein

Félagsmaður glatar félagsréttindum sínum um leið og hann missir atvinnuleyfi sitt, þó mega félagsmenn sem leggja inn atvinnuleyfi sitt til skamms tíma halda félagsréttindum í allt að sex mánuði eftir innlögn, enda greiði þeir félagsgjöld í þann tíma.

            Félagsmenn, sem hætta akstri um lengri eða skemmri tíma til að rækja störf fyrir félagið eða heildarsamtök, sem félagið er aðili að, mega halda félagsréttindum sínum.

 

5. grein

         Öllum félagsmönnum er skylt að hlýða lögum félagsins og fylgja reglum sem stjórn þess hefur sett.

 

6. grein

         Hver sá félagsmaður, sem verður þess vís, að brotnar hafa verið reglur, sem félagið hefur sett, skal tilkynna það formanni félagsins eða starfsmanni.

 

II. KAFLI

  FUNDIR

 

7. grein

         Aðalfundur félagsins hefir æðsta vald í öllum málum þess. Aðalfund skal halda fyrir lok aprílmánaðar ár hvert. Aðalfund skal boða með fjórtán daga fyrirvara með uppfestum auglýsingum á bifreiðaafgreiðslum á svæðinu. Á aðalfundi skal skýra frá störfum félagsins á liðnu ári og leggja fram enduskoðaða reikninga félagsins til umræðu og samþykktar.

         Þegar stjórnarkjör fer fram skal tvískipta aðalfundi, þannig að kosningar séu á milli fundanna. Á framhaldsaðalfundi skal lýsa kjöri stjórnar, bera reikninga upp til samþykktar og afgreiða tillögur sem komið hafa fram.

         Á aðalfundi ræður afl atkvæða, nema þar sem lög þess gera berum orðum ráð fyrir auknum meirihluta. Fundagerð aðalfundar staðfestist með undirskrift fundarstjóra og fundarritara. Fundargerð síðasta aðalfundar skal liggja frammi á skrifstofu félagsins til kynningar fyrir félagsmenn sjö dögum fyrir næsta aðalfund og borin undir atkvæði í upphafi fundar.

 

8. grein

         Formaður skal boða til stjórnarfunda er hann telur þörf á, eins ef meirihluti stjórnar óskar þess. Félagsfundir skulu haldnir, þegar stjórnin telur þess þörf. Þó er stjórn félagsins skylt að boða til fundar, ef minnst 1/10 hluti félagsmanna óskar þess skriflega, enda sé í hverju tilfelli tilgreint fundarefni.

         Fundir eru löglegir, sé löglega til þeirra boðað. Fundum félagsins skal stjórna með almennum fundarsköpum.

 

III. KAFLI

STJÓRNARKJÖR

 

9. grein

         Stjórnarkjör skal fara fram annað hvert ár þar sem kosið er um stjórn félagsins. Kosning fer þó ekki fram ef aðeins einn listi er í kjöri.

         Við kosningar skal kjósa fimm manna stjórn félagsins og tvo til vara.

         Stjórnina skipa formaður, varaformaður, ritari og tveir meðstjórnendur. Einnig skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga og einn til vara.

         Stjórn félagsins skipar þrjá kjörgenga félagsmenn í kjörstjórn og tvo til vara. Þetta skal gert fyrir lok febrúar, þau ár sem kosið er.

 

10. grein

         Kjörstjórn skal auglýsa eftir framboðslistum. Framboðsfrestur skal vera sjö sólarhringar og skal listum skilað til kjörstjórnar, áður en sá frestur er liðinn.

 

11. grein

         Þrjá ábyrgðarmenn þarf til að bera fram lista með skriflegum meðmælum 15% félagsmanna. Lista sem sitjandi stjórn leggur fram þurfa þó engin meðmæli að fylgja.

 

12. grein

         Þegar framboðsfrestur er útrunninn og listum hefur verið skilað, skal kjörstjórn auglýsa stjórnarkjörið með minnst sjö daga fyrirvara með auglýsingum á bifreiðaafgreiðslum. Skal í auglýsingunni tilgreina nöfn frambjóðenda, kjörstað, stund og hve lengi kosning stendur yfir.

 

13. grein

         Atkvæðagreiðslan skal fara fram fyrir lok apríl og standa yfir í einn dag, ekki skemur en 10 klst. Kjörstjórn sér um, að öll gögn séu fyrir hendi, þegar atkvæðagreiðslan hefst.

 

14. grein

         Á kjörseðil skal raða listum eftir þeirri röð, sem þeir berast til kjörstjórnar. Á hverjum lista skulu vera nöfn þeirra tíu sem kjósa á. Kjósandi greiðir atkvæði á þann hátt, að hann merkir í þar til gerðan reit á kjörseðli fyrir framan þann lista sem hann ætlar að kjósa.

         Atkvæði er ógilt ef ekki verður séð við hvaða lista er merkt eða ef merkt er við fleiri listabókstafi en einn.

 

15. grein

         Atkvæðisrétt hafa allir félagsmenn, sem greitt hafa að fullu tilskilin gjöld sín til félagsins s.l. tvo mánuði.

 

16. grein

         Kjörstjórn skal sjá um, að kjörskrá ásamt lista yfir þá félagsmenn, sem ekki eru á kjörskrá vegna skulda, sé tilbúin, sjö dögum fyrir kjördag og skulu hvoru tveggja liggja frammi frá þeim tíma og þar til atkvæðagreiðslu er lokið, á hverjum þeim stað, sem félagsmenn eiga greiðan aðgang að.

         Ábyrgðarmenn hvers lista skulu hafa rétt til að fá eintak af félagaskrá, límmiðasett, ásamt skuldalista viku eftir að framboðsfrestur er útrunninn.

         Allar kærur út af kjörskrá skal kjörstjórn úrskurða jafnóðum og þær berast.

         Kærufrestur er til loka kjörfundar.

 

17. grein

Kjörstjórn sér um talningu atkvæða að kjörfundi loknum. Ábyrgðarmenn hvers lista hafa rétt til að vera við talningu atkvæða.

 

IV. KAFLI

ÝMIS ÁKVÆÐI

 

18. grein

         Ritari  félagsins heldur gerðabækur og innfærir í þær félagsfundagerðir, stjórnarfundagerðir og lagabreytingar.

 

19. grein

         Hver félagsmaður Frama skal greiða félagsgjald til félagsins samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar. Sé gjaldið eigi greitt fyrir eindaga skal innheimta af því dráttarvexti í samræmi við reglur Seðlabanka Íslands.

         Verði vanskil á greiðslu félagsgjalda missir viðkomandi félagsmaður félagsréttindi þar til full skil hafa verið gerð vegna þeirra.

         Stjórn félagsins er heimilt að innheimta þjónustugjöld hjá þeim sem njóta þjónustu félagsins.

 

 

20. grein

         Lögum félagsins má einungis breyta á aðalfundi, enda hafi fyrirhugaðar breytingar verið kynntar í fundarboði.

         Tillaga að lagabreytingum skal berast stjórn félagsins fyrir 15. mars til þess að hún verði löglega borin upp á næsta aðalfundi og auglýst í fundarboði. Til þess að lagabreyting nái gildi, verður hún að vera samþykkt með meirihluta greiddra atkvæða fundarmanna og tekur hún gildi að loknum aðalfundi.

 

Samþykkt á aðalfundi Frama 27. apríl 2006.