Flestir geta ekið leigubifreið. Það eru þó skilyrði sem þarf að uppfylla. Þú þarft að hafa ökuréttindi á leigubifreið (meirapróf),. Þá þarft þú að hafa undirgengist námskeið sem Vegagerðin hefur falið Ökuskólanum í Mjódd að halda utan um. Þegar þú hefur lokið námskeiðinu færð þú skírteini útgefið af Vegagerðinni sem segir að þú sért löglegur afleysingamaður. Þegar skírteinið er komið er best fyrir þig að skrá þig hér hjá Frama en hingað koma leyfishafar til þess að leita sér aðf afleysingamönnum. Við gefum þeim upp nöfn þeirra afleysingamanna sem eru að leita að leigubifreið til að aka. Einhverjir hafa tilhneigingu til að ætla að annarleg sjónarmið ráði því hverjir fái vinnu, en það er ekki svo, alltaf vantar gott fólk í afleysingar. Þegar leigubifreiðarstjóri verður óvinnufær t.d. vegna veikinda, skiptir það öllu máli fyrir hann að fá heiðarlegan og samviskusaman starfsmann í vinnu sem fer vel með atvinnutækið. Það er alveg sama uppi á teningnum hjá leigubifreiðastjórum og öðrum atvinnurekendum að þessi gildi skipta öllu máli. Reglan er sú að þeir sem stefna að atvinnuleyfi verða að vinna sem launþegar til að byrja með og vinna sér þannig inn tíma. Þau atvinnuleyfi sem losna er úthlutað til þeirra sem hafa lengsta starfsreynslu og hafa lokið námskeiði fyrir atvinnuleyfishafa á vegum Vegagerðarinnar. Sumum finnst þetta óréttlát aðferð, en hvað er réttlátara en að þeir fái fyrst atvinnuleyfi sem mesta starfsreynslu hafa?
Það er ekki allra að aka leigubifreið. Leiguakstur er mjög krefjandi starf og útheimtir mikla þolinmæði og geðprýði. Miklar kröfur eru gerðar til bifreiðastjóra og er það vel. Einnig gera bifreiðastjórarnir miklar kröfur til manna sem eru að ganga sín fyrstu skref sem launþegar því mikil samkeppni er á milli stöðva og er hún fyrst og fremst á sviði þjónustu. Þarna er helsta hindrunin ef hindrun skyldi kalla. Þetta er hörð samkeppni um þjónustu, góða þjónustu og sá sem ekki er tilbúinn að veita hana getur gleymt leigubifreiðastjórastarfinu. |