{"componentChunkName":"component---src-templates-news-item-js","path":"/frettir/opid-bref-til-eftirlitsadila-med-leigubifreidaakstri-akall","result":{"data":{"wordpressWpNewsItems":{"title":"Opið bréf til eftirlitsaðila með leigubifreiðaakstri: Ákall","content":"
Innviðaráðuneyti b/t hæstvirts Innviðaráðherra                                    Reykjavík 10. júní 2026
\n
Leyfisveitingar Samgöngustofu
\n
Lögreglan
\n

\n
Opið bréf til þeirra er málið varðar um eftirlit með legubifreiðaakstri.
\n
Í aðdraganda lagabreytinganna 2022 um leigubifreiðaakstur, óskuðu íslenskir leigubifreiðastjórar þess að breytingar fengju málefnalega umræðu og að hlustað yrði á varnaðarorð þeirra og þekkingu.
\n
Leigubifreiðastjórar vöruðu við því að lagabreytingarnar væru afregluvæðing þar sem öryggi almennings væri fórnað fyrir frjálsræðið.  Auk þess yrði ekki lengur hægt að tryggja að leigubifreiðastjórar gætu lifað á sinni atvinnu og þannig haldið uppi þjónustu til almennings.  Eins og þjóðkunnugt er,  var ekki hlustað á fagstéttina og lögum um leigubifreiðaakstur breytt á Alþingi desember 2022,  sem tóku gildi 1. apríl 2023.
\n
Frá 2023 hefur orðið neikvæð þróun og offjölgun í rekstri leigubifreiða, ör mannaskipti í stéttinni, rangar eða engar merkingar bifreiða, rekstur ekki skráður, tekjur færðar á erlenda reikninga, leyfum skilað inn, bifreiðar skráðar úr leiguakstri,  en starfsemi haldið áfram samt sem áður.  Á sama tíma hefur rekstrarkostnaður aukist verulega með hækkandi gjöldum samhliða verri afkomu.  Ekkert eftirlit hefur verið með nýtingu leyfa eftir að öll takmörkun var afnumin.
\n
Allt frá 2014 hefur Bifreiðstjórafélagið Frami óskað eftir að stjórnvöld taki á svörtum farþegaakstri sem einstaklingar hafa tekjur af án tilskilinna leyfa, sérstaklega um helgar nætur. Í miðbæ Reykjavíkur má til dæmis sjá almennar bifreiðar stelast í stæði leigubifreiða og taka upp farþega. Þar að auki er töluvert um óskráða leigubíla sem sækja farþega frá hótelum og gististöðum alla daga og nætur. Hér ætti eftirlitið ekki síst að uppræta brotastarfsemina.
\n
Lögin voru nýlega endurskoðuð og var niðurstaðan lagabreyting til batnaðar sem tók gildi 1.júní síðastliðinn, það er að segja, stöðvarskylda með rakningu ferða og sérstakar númeraplötur til að auðkenna löglegar leigubifreiðar.  Ætlunin með breytingunni er að endurvekja traust almennings á leigubifreiðaakstri og auðvelda eftirlit.
\n
Ákall er um að efla eftirlit með leiguakstri og framfylgja nýsamþykktum lögum og reglum!
\n
Bifreiðastjórafélagið Frami
\n","date":"2026-06-10T17:37:36.000Z"}},"pageContext":{"language":"is","buildHash":1781126224540,"id":"51a8f0ae-593a-5059-a004-048d21b578e5"}},"staticQueryHashes":["3649515864","4233463942"]}