6. október 2023

Ástgeir Þorsteinsson fyrrverandi formaður Frama er fallinn frá

Stjórnir Bandalags íslenskra leigubifreiðastjóra og Bifreiðastjórafélagsins Frama, senda fjölskyldu og vinum Ástgeirs Þorsteinssonar innilegar samúðarkveðjur vegna fráfalls hans eftir hetjulega baráttu við krabbamein þann 4. október síðastliðinn.
Ástgeirs Þorsteinssonar “Geira” er minnst af hlýhug og þakklæti fyrir ósérhlífin störf í rúma tvo áratugi í þágu stéttar leigubifreiðastjóra.
Ástgeir hætti í stjórn Frama vorið 2019, en veitti félaginu aðstoð sína í fjögur ár til viðbótar. Ástgeir var einnig formaður Bandalags íslenskra leigubifreiðastjóra á sama kjörtímabili.
Hugur okkar er hjá aðstandendum þessa stundina og sendum við þeim okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Stjórn Frama og BÍLS

Augnablik