25. apríl 2026

FRAMBOÐ KÆRÐ

FRAMBOÐ KÆRÐ
Kjörstjórn og stjórn Frama barst kæra frá félagsmanni vegna framboða til stjórnarsetu félagsins.
Kæran barst frá Sigurði Sigurðssyni þann 22. apríl 2026 og í henni kemur meðal annars fram:
“Vegna framkominna framboða í stjórn Frama vil ég kæra framboð fyrrverandi
stjórnarmanna sem ég tel í engu sæmandi þar sem vantraust á þessa stjórnarmenn var
samþykkt á síðasta aðalfundi … … … í það minnsta til næsta aðalfundar.
Þessir aðilar sem skipuðu síðustu stjórn eru því alls ekki kjörgeng.
Kristjana Kristjánsdóttir
Stefán Jónasson
Smári B. Ólafsson
Magnús D. Karlsson … … …
E.s. Það eru eindregin tilmæli mín að þessi póstur verði öllum aðgengilegur á vef félagsins með birtingu nú þegar.
Virðingarfyllst Sigurður Sigurðsson nr.127 á Hreyfli”
Tilvitnun lýkur.
… … … … … … … … … … … …

Kjörstjórn hefur yfirfarið kæruna sem henni barst 22. apríl frá Sigurði Sigurðssyni.
Tekið hefur verið tillit til þeirra þátta kærunnar sem snúa að kjörstjórn. Áður hafði kjörstjórn metið framboðin gild, Metur kjörstjórn svo að kærunni sé vísað til aðalfundar á undan dagskrárliðum stjórnarkjörs.
Kjörstjórn Frama 2026

Augnablik