5. október 2026

Haustferð 2026 heppnaðist vel

Haustferð Ferðafélags eldri bílstjóra Frama var farin laugardaginn 26. september sl. og var heppnin með okkur, þar sem spáin hafði verið leiðinleg en svo rættist úr og við nutum útsýnis við gott skyggni.

Í ferðinni heimsóttum við Æðarsetur Íslands, Norska Húsið og byggðasafnið, Bjarnarhöfn og Hákarlasafnið, Ólafsvík og Matarlist, þar sem við snæddum nýjan þorsk og svo gulrótarköku með kaffinu. Hópmyndin var tekin þegar við námum staðar við Arnarstapa.

Í lok ferðar, var komið við á Vegamótum og drukkið kaffi með hjónabandssælu og rjóma.

Þessi ferð var vel heppnuð, bæði fræðandi og mjög skemmtileg.

Ferðafélag eldri bílstjóra Frama þakkar samveruna

Augnablik