26. ágúst 2026
Haustferð eldri bílstjóra 2026
Kæru félagar.
Senn líður að hinni árlegu haustferð eldri bílstjóra Frama. Búið var að ákveða að við skyldum fara á Snæfellsnes og hefur dagsetningin verið ákveðin laugardaginn þann 26. september næst komandi. Verði spáin slæm, má búast við frestun ferðarinnar til laugaardagsins 3. október.
Dagskrá ferðarinnar verður send í tölvupósti síðar. Öllum félagsmönnum 70 ára og eldri er velkomið að skrá sig í ferðina og hægt er að bjóða einum gesti með sér.
Skráning þátttöku fer fram á skrifstofu félagsins í síma 5685575 milli kl.12 og 16 virka daga og þarf að berast fyrir fimmtudaginn 24. september.
Stjórn Frama sendir öllum eldri bílstjórum góðar kveðjur
