20. nóvember 2026

Heimsókn Innviðaráðherra á 28. landsþingi B.Í.L.S.

Á 28. landsþingi Bandalags íslenskra leigubifreiðastjóra sem haldið var í höfuðstöð félaganna B.Í.L.S. og Frama þann 19. nóvember, heimsótti okkur Hæstvirtur Eyjólfur Ármansson Innviðaráðherra.

Bandalagsmenn áttu langt og gott samtal við ráðherra sem veitti þeim áheyrn. Fjallað var um stöðuna hjá starfstétt leigubifreiðstjóra, sem nú á dögum tekst á við ólögmæta samkeppni og vanbúið eftirlit. Á fundi með ráðherra kom margt fram sem hefur ekki verið rætt áður og sem liggur mest á að lagfæra hvað snýr að öryggi almennings og afkomu stéttarinannar.

Stjórn Bandalagsins afhenti Innviðaráðherra minnisblað um væntingar stéttarinnar að bættri vegferð um málefni leigubifreiðaaksturs. Ber þá helst að nefna ósk B.Í.L.S. að fulltrúar Bandalagsins fái sæti við borðið áður en næsti áfangi lagabreytinga er mótaður, svo reynsla úr faginu nýtist með málefnalegu samtali fyrir komandi umbótum. Tók ráðherra vel í þá beiðni og er nú beðið þess fá jákvæðar fréttir. Bestu þakkir fær Hæstvirtur Innviðaráðherra Eyjólfur Ármannsson fyrir ánægjulega heimsókn og uppbyggilegt samtal.

Á landsþinginu var ný stjórn B.Í.L.S. skipuð eins og hefð er fyrir.

Í stjórn Bandalags íslenskra leigubifreiðastjóra sitja:

Daníel O. Einarsson, formaður

Ingólfur Möller Jónsson, varaformaður

Jón Svavarsson, ritari

Halldór Guðmundsson, gjaldkeri

Benedikt Smári Ólafsson, Sigurður Ingvar Ólafsson og Óli Valdimar Ívarsson meðstjórnendur.

Gylfi Ásmundsson lætur af störfum eftir þrjá áratugi í stjórn fyrir hönd Bílstjórafélags Akureyrar sem varaformaður Bandalagsins.

   

Gylfi Ásmundsson fær einlægar þakkir frá okkur félagsmönnum fyrir sitt ósérhlýfna samstarf í þágu stéttarinnar, með leiðandi forystu fyrir hag bílstjóra jafnt sem almennings.

Augnablik