9. nóvember 2021

Úthlutun atvinnuleyfa til aksturs leigubifreiða

Samgöngustofa auglýsir:

Auglýsing vegna úthlutunar atvinnuleyfa til aksturs leigubifreiða

8.11.2021

Samgöngustofa auglýsir laus til umsókna 50 leyfi til leiguaksturs fólksbifreiða á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum og 6 leyfi á Akureyri.

Þau ein geta sótt um leyfi sem hyggjast stunda akstur leigubifreiðar að aðalatvinnu og hafa lokið námskeiði fyrir leigubifreiðastjóra. Til að öðlast leyfi þurfa umsækjendur að uppfylla leyfisskilyrði, skv. 5. gr. laga nr. 134/2001 og rg.nr. 397/2003 um leigubifreiðar, með síðari breytingum.

Úthlutun leyfis fer fram á grundvelli starfsreynslu við akstur leigubifreiðar, sbr. 6. gr. reglugerðarinnar.

Umsóknareyðublöð má nálgast hér á vefnum, www.samgongustofa.is.

Umsóknarfrestur er til og með 12. nóvember nk.

Umsókn hér

Augnablik